Samtalið tekið um menningu og ferðaþjónustu

Opnar vinnustofur um menningu og ferðaþjónustu voru haldnar á Akureyri 7. maí og á Egilsstöðum 8. maí undir yfirskriftinni „Aukum samtalið og styrkjum samstarfið“. Þar komu saman fulltrúar safna, menningarstofnana, markaðsstofa og ferðaþjónustunnar til að ræða hvernig efla megi samstarf greina og skapa sterkari og sjálfbærari ferðaþjónustu á bæði Norður- og Austurlandi.

Á vinnustofunum voru meðal annars haldnar pallborðsumræður um möguleika í samstarfi innan svæða, áskoranir í greininni og leiðir til úrbóta. Þá flutti Hjalti Már Einarsson hjá Datera fyrirlestur um markaðssetningu menningarstofnana og dagskránni lauk með svokölluðum „speed-dating“ viðburði þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að tengjast og skiptast á hugmyndum.

 

 

Góðar umræður sköpuðust á báðum vinnustofunum en á Akureyri var mikið rætt um mikilvægi aukins samtals milli safna og ferðaþjónustuaðila, sérstaklega í tengslum við opnunartíma, markaðssetningu og hvernig hægt sé að gera söfn að sýnilegri áfangastöðum fyrir ferðamenn. Fram kom að bæði söfn og ferðaþjónustan glímdu við ákveðið skilningsleysi á hlutverki hvors annars, en þátttakendur voru sammála um að samstarf og betri upplýsingamiðlun væru lykillinn að frekari þróun. Einnig var rætt um tækifærin sem felast í auknu vetrarflugi til Akureyrar, mikilvægi þess að ferðamenn dvelji lengur á svæðinu.

 

Á Egilsstöðum beindist umræðan meðal annars að því hvernig söfn og menningarstofnanir gætu skapað sterkari upplifun fyrir gesti og orðið sýnilegri hluti af ferðaþjónustu á Austurlandi. Þátttakendur ræddu mikilvægi persónulegrar móttöku, samvinnu milli safna á svæðinu og hvernig hægt væri að þróa sameiginleg verkefni á borð við safnapassa, menningarhringi og samræmda markaðssetningu. Þá kom einnig fram að söfn væru oft enn álitin „plan B“ í ferðaþjónustu og að skortur á fjármagni, starfsfólki og tíma væri stór áskorun. Áhersla var lögð á að halda áfram samtalinu og byggja upp sterkari tengsl milli menningar og ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

 

Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök Ferðaþjónustunnar (SAF) stóðu fyrir vinnustofunum en þær eru hluti af verkefni sem snýr að því að kanna vægi safna og annarra menningarstofnana fyrir ferðaþjónustuna og hvernig hægt sé að styrkja samstarfið á milli allra aðila. Verkefnið hlaut til styrk frá Safnasjóði til eins árs. Fleiri vinnustofur verða haldnar næsta haust í öðrum landshlutum.

Í tengslum við verkefnið kom einnig út bæklingur með hagnýtum upplýsingum sem hægt er að nálgast hér: Menning og ferðaþjónusta - bæklingur