Fréttir

Af gestum og heimamönnum: Málstofa um rannsóknir í ferðaþjónustu

Fimmtudaginn 3. mars kl. 13:00-15:30 býður Rannsóknamiðstöð ferðamála býður til málstofu um yfirstandandi rannsóknir miðstöðvarinnar á íslenskri ferðaþjónustu. Málstofan verður haldin í Háskólanum á Akureyri, Sólborg, stofu M 102. Allir eru velkomnir
Lesa meira

Samgönguþing 2016

Markaðsstofa Norðurlands boðar til Samgönguþings 17. febrúar n.k. Yfirskrift þingsins er að þessu sinni „Almenningssamgöngur og skemmtiferðaskip". Meðal framsögumanna verður Edward H. Huijbens, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála.
Lesa meira

Samráðsfundur Íslandsstofu

Íslandsstofa hefur boðað til samstarfsfundar undir yfirskriftinni „Íslensk ferðaþjónusta - Markaðssetning í breyttu umhverfi" um markaðsstarf ársins 2016 erlendis. Á fundinum verður kynnt ný markaðsherferð undir heitinu Ísland – allt árið.
Lesa meira

Áhrif Hvalárvirkjunar á ferðamennsku og útivist

Unnið hefur verið mat á hugsanlegum áhrifum á ferðamennsku og útivist, verði af fyrirhugaðri virkjun Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum.
Lesa meira

Vegvísir í ferðaþjónustu í enskri þýðingu

Komin er út ensk þýðing Vegvísis í ferðaþjónustu sem gefinn var út í október s.l. og byggði á samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar og iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem jafnframt er ráðherra ferðamála.
Lesa meira

Bók um ferðamennsku og mannöldina

Nýútkomið greinasafn „Tourism and the Anthropocene“ er fyrsta bókin á sviði ferðamálafræða sem tengir ferðamennsku við mannöldina (anthropocene). Ritstjórar bókarinnar eru Martin Gren, lektor við Linné-háskólann í Svíþjóð og Edward H. Huijbens, prófessor við Háskólann á Akureyri.
Lesa meira

Samstarfssamningur um starfsþróun í ferðaþjónustu

SAF og HÍ taka höndum saman Námsbraut í Land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar gerðu með sér samstarfssamning um námskeið í Starfsþróun í ferðaþjónustu sem kennt var í fyrsta skipti á vormisseri 2015.
Lesa meira

Laust starf: Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála

Við Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar 100% staða forstöðumanns Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
Lesa meira

Ingjaldssjóður stofnaður

Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands til minningar um Ingjald Hannibalsson prófessor. Ingjaldur var stjórnarformaður RMF um 10 ára skeið.
Lesa meira

Aðgerðir til eflingar millilandaflugs á landsbyggð

Skýrsla starfshóps um tillögur að eflingu millilandaflugs um aðra íslenska flugvelli en Keflavík var nýverið gerð opinber á heimasíðu forsætisráðuneytisins.
Lesa meira